Breytingar á framkvæmdastjórn FL Group


Reykjavík, 16. maí 2008 - FL Group (OMX: FL) tilkynnir um breytingar á
framkvæmdastjórn félagsins. Samkomulag er um að Benedikt Gíslason,
framkvæmdastjóri Markaðsviðskipta,láti af störfum hjá félaginu. Benedikt hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Straumi-Burðarás fjárfestingabanka. 

Sú starfsemi sem áður heyrði undir Markaðsviðskipti FL Group munu eftirleiðis
heyra undir forstjóra félagsins. Í framkvæmdastjórn FL Group sitja nú Jón
Sigurðsson forstjóri, Viðar Þorkelsson fjármálastjóri, Örvar Kærnested
framkvæmdastjóri Private Equity og Bernhard Bogason framkvæmdastjóri
lögfræðisviðs. 

Nánari upplýsingar veitir:
Júlíus Þorfinnsson
Forstöðumaður samskiptasviðs
julius@flgroup.is
s. 591 4400