Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Teymis hf. á 51% hlut í IP fjarskiptum ehf. (Tal) sem tilkynnt var um 26. febrúar sl. Teymi hf. ber að tryggja fullan fjárhagslegan og stjórnunarlegan aðskilnað Tals og Og fjarskipta ehf. (Vodafone). Tal mun verða hluti af samstæðureikningi Teymis frá og með 1. júní 2008. Frekari upplýsingar veitir Dóra Sif Tynes frkv.stjóri lögfræðisviðs í síma 669 5512