Ríkisstjórn Íslands sendi frá sér í dag yfirlýsingu vegna sérstakra aðgerða í húsnæðismálum. Aðgerðunum er ætlað að koma til móts við minnkandi umsvif á fasteignamarkaði m.a. vegna lausafjárerfiðleika á lánamörkuðum. Aðgerðir þessar, þ.e. lánveitingar til banka, sparisjóða og annarra fjármálafyrirtækja vegna íbúðalána, hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs, afnám viðmiðunar á lánum sjóðsins við brunabótamat og auknar heimildir vegna almennra leiguíbúðalána, munu hafa áhrif til hækkunar á áætlaðri útgáfu íbúðabréfa. Ný áætlun um útlán, útgáfu íbúðabréfa og greiðslur Íbúðalánasjóðs á árinu 2008 verður birt á OMX Nordic Exchange á Íslandi í júlí 2008. Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má nálgast í meðfylgjandi skjali.