Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 7 milljarðar króna að nafnverði. Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við Kaupþing, Glitni, Landsbanka Íslands, Straum - Burðarás Fjárfestingarbanka, MP Fjárfestingarbanka og Saga Capital Fjárfestingarbanka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Hér með er óskað eftir tilboði í frumsölu á íbúðabréfum gefnum út af Íbúðalánasjóði í samræmi við eftirfarandi lýsingu. Útboðsfjárhæð: 8.000.000.000. (átta milljarðar króna) Lágmarkstilboð: Samkvæmt aðalmiðlarasamningi dags 14/6/2007 Lánstími: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Útgáfudagur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Endurgreiðslur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Nafnvextir: Fastir vextir 3,75% Grunnvísitala: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Einingar: 1 kr. rafbréf í hverjum flokki fyrir sig. Þóknun: Íbúðalánasjóður greiðir þóknun 0,15% Verð: Tilboð skal innihalda verð, með og án þóknunar, tilboðsfjárhæð og ávöxtunarkröfu. Fyrirkomulag: “American” uppboðsaðferð þar sem hver og einn tilboðsgjafi sækist eftir sínu verði og niðurstöður útboðs geta því orðið á fleiri en einu verði. Uppgjör sölu: Föstudaginn 27. júní 2008 Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, föstudaginn 20. júní 2008, í lokuðum umslögum merkt: Íbúðalánasjóður, b.t. fjármálasviðs, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, Íslandi. Einnig má senda tilboð í tölvupósti til fjarstyring@ils.is eða með myndsendi í númer 569-6890 á tilboðsdegi, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við starfsmenn fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs í síma 569-6990. Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:30 mánudaginn 23.júní 2008.