Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 20. júní 2008. Alls bárust tilboð að nafnvirði 20,8 milljarður króna. Ákveðið var að taka tilboðum í íbúðabréf: • HFF150224 að nafnvirði 3,6 milljarðar króna, vegin áv.krafa án þóknunar er 4,80% • HFF150434 að nafnvirði 3,7 milljarðar króna, vegin áv.krafa án þóknunar er 4,44% • HFF150644 að nafnvirði 700 milljónir króna, vegin áv.krafa án þóknunar er 4,30% Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,59% og 4,61%, með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 27. júní 2008. Nánari upplýsingar veita Herdís Einarsdóttir og Sigurður K. Sigurðsson (símar 569 6993 og 569 6996).