- Bakkavör Group birtir sex mánaða uppgjör félagsins 2008 fimmtudaginn 31. júlí nk.


Bakkavör Group mun birta afkomu sína fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008
fimmtudaginn 31. júlí nk. fyrir opnun markaða. 

Kynningarfundur fimmtudaginn 31. júlí kl. 17:00

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 31.
júlí kl. 17:00 að íslenskum tíma í Ármúla 3, 108 Reykjavík. Á fundinum mun
Ágúst Guðmundsson, forstjóri félagsins, skýra uppgjörið og svara fyrirspurnum. 

Netvarp og símafundur

Fundinum verður varpað á netinu á www.bakkavor.com og hefst útsendingin kl.
17:00 að íslenskum tíma. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í síma 800
8660 og +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu félagsins, www.bakkavor.com