Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð um nýjan lánaflokk sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði. Allt að 30 milljörðum verður varið í þessum lánaflokki í formi íbúðabréfa, sem eingöngu verða notuð í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands. Jafnframt mun félags- og tryggingamálaráðherra leggja fram á Alþingi í byrjun september n.k. frumvarp þar sem lagt verður til að Íbúðalánasjóði verði veitt heimild til að fjármagna og kaupa ný íbúðalán af fjármálafyrirtækjum. Verði frumvarpið að lögum er áætlað að verja til þessa allt að 30 milljörðum króna á þessu og næsta ári. Þessar lagabreytingar yrðu óháðar heildarskoðun laga um húsnæðismál, sem jafnframt er fyrirhuguð á komandi löggjafarþingi sem hefst í október. Fréttatilkynninguna má nálgast í meðfylgjandi skjali.