Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2008 er 310,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,94% frá júní. Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í miðjum júlí 2008, 310,0 stig, gildir til verð¬tryggingar í september 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.121 stig fyrir september 2008. Fréttatilkynningu Hagstofunnar um vísitölu neysluverðs er að finna á: http://www.hagstofa.is