Afkomutilkynning frá Teymi hf. Reykjavík, 30. júlí 2008 Tekjur 6,4 milljarðar á öðrum ársfjórðungi sem er 24% vöxtur frá fyrra ári (13% pro-forma) EBITDA 1.045 m.kr. 610 m.kr. tap eftir skatta Myntbreyting lána 5 milljarðar króna yfir í erlendar myntir á GVT 164 Tekjur Teymis námu 12,4 milljörðum á fyrri árshelmingi 2008 sem er 24% vöxtur frá fyrra ári (11% pro forma). Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2.048 milljónum króna sem er 4% aukning frá fyrra ári (pro forma). Tap eftir reiknaða skatta nam 5.509 milljónum króna. Veltufjárhlutfall Teymis er nú 0,82 og eiginfjárhlutfall 18%. Handbært fé frá rekstri fyrir greidda vexti og skatta nam 1.656 milljónum króna. Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2008: • Sala nam 6,4 milljörðum króna (ma) til samanburðar við 5,2 ma á sama tímabili árið áður sem gerir 24% innri vöxt á milli ára (13% pro-forma). • EBITDA nam 1.045 m.kr. til samanburðar við 1.027 m.kr. á sama tímabili árið áður sem gerir 2% hækkun á milli ára (- 2% pro-forma). • EBIT nam 551 m.kr. • Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 1.296 m.kr. á tímabilinu. Þar af nam gengistap af vaxtaberandi skuldum 95 m.kr. • Tap fyrir reiknaðan tekjuskatt nam 745 m.kr. og tap tímabilsins nam 610 m.kr. • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 797 m.kr. Helstu niðurstöður fyrri árshelmings 2008: • Sala nam 12.391 m.kr. til samanburðar við 11.188 m.kr. árið áður sem jafngildir 11% vexti (pro-forma) • EBITDA nam 2.048 m.kr. til samanburðar við 1.974 m.kr. árið áður (pro-forma) • EBIT nam 1.074 m.kr. • Gengistap af langtímaskuldum nam 5,3 ma.kr. • Tap fyrir reiknaðan tekjuskatt var 6.329 m.kr. og tap tímabilsins var 5.509 m.kr. • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 1.656 m.kr. Árni Pétur Jónsson, forstjóri „Afkoma félagsins á ársfjórðungnum er að okkar mati viðunandi í ljósi þess ástands sem ríkir í efnahagsumhverfinu. Innri vöxtur er mjög góður, EBITDA afkoma góð og sjóðstreymi frá rekstri er sterkt. Gengisfall krónunnar hefur hins vegar leitt til hækkunar á vaxtaberandi skuldum og hlutfallslega minni EBITDA framlegðar en á síðastliðnu ári. Undir lok annars ársfjórðungs ákváðum við að nýta okkur myntbreytingarheimild í lánasamningi okkar sem léttir verulega á vaxtabyrði félagsins. Einnig hefur verið gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða sem þegar eru farnar að skila sér og endurspeglast í afkomu annars ársfjórðungs.“