Hluthafafundur Teymis hf. 14. ágúst 2008 Stjórn Teymis hf. boðar til hluthafafundarfélagsins fimmtudaginn 14. ágúst 2008 kl. 9:00 á skrifstofu félagins að Suðurlandsbraut 18, Reykjavík. Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál; 1. Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins úr kauphöllinni OMX Nordic Exchange á Íslandi. 2. Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í félaginu er þess óska. Greitt verði fyrir hlutina með hlutum í Alfesca hf. Tilboðið standi frá kl. 9:00 föstudaginn 15. ágúst 2008 til kl. 16.00 föstudaginn 29. ágúst 2008. Gengi hlutabréfa í Teymi hf. við kaupin skal vera kr. 1,90 fyrir hvern hlut. Gengi hlutabréfa í Alfesca hf. skal vera kr. 6,96 fyrir hvern hlut. Þannig fær hver hluthafi er tekur tilboðinu 0,2729885 hluti í Alfesca hf. fyrir hvern hlut í Teymi hf. 3. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind kaup á hlutabréfum í Teymi hf. að kaupa allt að 22% eigin hluta fyrir kr. 1,90 hvern hlut, þrátt fyrir ákvæði 2.02 í samþykktum félagsins. Heimildin skal gilda til og með 30. september 2008. Verði eigin hlutir í eigu félagsins umfram 10% af hlutafénu eftir viðskiptin skal stjórn félagsins lækka hlutafé félagsins, í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög, þannig að eigin hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. 4. Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað, í því skyni að mæta framangreindum kaupum á hlutum í Teymi hf. að kaupa allt að 212.000.000 hluti í Alfesca hf. fyrir kr. 6,96 hvern hlut og greiða fyrir með lántöku. 5. Önnur mál löglega fram borin. Fundargögn, þ.m.t. tillögur stjórnar ásamt greinargerð, liggja frammi á skrifstofu Teymis hf. frá og með fimmtudeginum 7. ágúst 2008. Gögnin eru ennfremur aðgengileg á heimasíðu félagsins, www.teymi.is. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhentir á fundarstað frá kl. 8:00.