Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 8 milljarðar króna að nafnverði. Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við Glitni, Kaupþing, Landsbanka Íslands, MP Fjárfestingarbanka, Saga Capital Fjárfestingarbanka og Straum - Burðarás fjárfestinga-banka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Hér með er óskað eftir tilboði í frumsölu á íbúðabréfum sem Íbúðalánasjóður gaf út í samræmi við eftirfarandi lýsingu. Útboðsfjárhæð: 8.000.000.000 (átta milljarðar króna). Lágmarkstilboð: Samkvæmt aðalmiðlarasamningi dags. 18/6/2008. Lánstími: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004. Útgáfudagur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004. Endurgreiðslur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004. Nafnvextir: Fastir vextir 3,75%. Grunnvísitala: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004. Einingar: 1 kr. rafbréf í hverjum flokki fyrir sig. Þóknun: Íbúðalánasjóður greiðir þóknun 0,15%. Tilboð: Í tilboði skal taka fram viðskiptaverð („hreint“ verð) án þóknunar, tilboðsfjárhæð og ávöxtunarkröfu án þóknunar. Fyrirkomulag: “American” uppboðsaðferð þar sem hver og einn tilboðsgjafi sækist eftir sínu verði og niðurstöður útboðs geta því orðið á fleiri en einu verði. Uppgjör sölu: Fimmtudaginn 14. ágúst 2008 Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, föstudaginn 8. ágúst 2008, í lokuðum umslögum merkt: Íbúðalánasjóður, b.t. fjármálasviðs, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, Íslandi. Einnig má senda tilboð í tölvupósti til fjarstyring@ils.is eða með myndsendi í 569-6890 á tilboðsdegi, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við starfsmenn fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs í síma 569-6990. Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:30 mánudaginn 11. ágúst 2008.