Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 11. ágúst 2008. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 8. ágúst 2008 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,43%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi, samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.