Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 8. ágúst 2008. Alls bárust tilboð að nafnvirði 19,7 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf: • HFF150224 að nafnvirði 3,5 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,68% • HFF150434 að nafnvirði 3,1 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,27% • HFF150644 að nafnvirði 1,4 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,15% Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,43% og 4,45% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 14.ágúst 2008.