Leiðrétting: Tilkynning nú sett í fulla dreifingu á evrópska efnahagssvæðinu. Árshlutauppgjör SP-Fjármögnunar hf. 30.06.2008 Stjórn SP-Fjármögnunar hf. hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2008. Lykiltölur úr rekstri eru þessar helstar (í millj. króna á verðlagi hvers árs): (Sjá viðhengi) SP-Fjármögnun hf. er eignaleigufyrirtæki og starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Félagið er dótturfélag Landsbanka Íslands hf., sem á 51,0% hlutafjár, og er árshlutareikningurinn hluti af samstæðureikningi móðurfélagsins og eru upplýsingar um afkomu og fjárhagsstöðu samstæðunnar þar. Aðrir hluthafar eru nokkrir sparisjóðir. Stærsti eignarhluturinn er í eigu Byrs sparisjóðs sem á 34,58% og Sparisjóðsins í Keflavík sem á 10,09% en aðrir eiga minna en 10% hver. Árshlutareikningur SP-Fjármögnunar hf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34 um árshlutareikninga, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu (EU). Hreinar tekjur yfir 1 milljarð á fyrri hluta árs 2008 • Hreinar tekjur voru 1.027 milljónir sem er 6% aukning frá fyrri hluta árs 2007 þegar hreinar tekjur námu 967 milljónum. • Rekstrarkostnaður jókst um 14,4% frá fyrra ári og nemur nú 315 milljónum. • Framlag í afskriftarreikning var 147 milljónir og er það aukning um rúm 70% frá fyrra ári. • Hagnaður eftir skatta nam 416 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2008 en var 473 milljónir fyrir sama tímabil í fyrra. Efnahagsreikningur stækkar mikið sökum veikingar krónunnar • Efnahagreikningur félagsins hefur stækkað verulega frá áramótum. Kemur það einkum til sökum veikingar krónunnar á árinu, en mjög stór hluti útlána SP-Fjármögnunar hf. er gengisbundinn. Efnahagur félagsins var um síðustu áramót 49,2 milljarðar en stendur nú í 68,7 milljörðum. • Eigið fé SP-Fjármögnunar hf. var í júnílok kr. 4.644 milljónir. Eiginfjárhlutfall félagsins (CAD hlutfall) sem reiknað er á grunni Basel II reglna er 10,9% en skv. lögum má það ekki vera lægra en 8%. Vanskilahlutföll • Í lok júní 2008 námu vanskil eldri en 30 daga tæpu 1% af heildarútlánum og höfðu aukist úr tæpum 0,6% frá ársbyrjun. • Heildarvanskil eru í júnílok um 1.120 milljónir kr. en á sama tíma nam virðisrýrnunarreikningur útlána og eignaleigusamninga hins vegar tæpum 1,4% af heildarútlánum eða 938 milljónum króna. Afkoma SP-Fjármögnunar hf. er í samræmi við áætlanir þrátt fyrir að verulega hafi hægt á nýjum útlánum og vanskil hafi aukist talsvert á árinu. Blikur eru á lofti í efnahagslífinu og útlit fyrir að hinum mikla vexti sem verið hefur á útlánum á undanförnum misserum sé lokið í bili. Engu að síður eru líkur á að afkoma ársins verði í samræmi við áætlanir. Rekstur SP-Fjármögnunar er traustur, eigendur félagsins eru sterkir og er SP-Fjármögnun því vel í stakk búið að skila góðri afkomu á komandi misserum. Í stjórn SP-Fjármögnunar hf. eru Þorgeir Baldursson formaður, Elín Sigfúsdóttir, Guðmundur Davíðsson, Magnús Ægir Magnússon og Ragnar Z. Guðjónsson. Framkvæmdastjóri félagsins er Kjartan Georg Gunnarsson.
- 6 mánaða uppgjör 2008 - Frétt birt 2008.07.21:16:03:10
| Source: SP-Fjármögnun hf.