Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2008 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í gær 21. ágúst 2008. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 466 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 20.655 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 8,0%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Bjarnason, Ívar Ragnarsson og Ásta H. Bragadóttir í síma 569 6900.