Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 22. ágúst 2008. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 21 milljarður króna. Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf: • HFF150224 að nafnvirði 2,3 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,67% • HFF150434 að nafnvirði 1,9 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,36% • HFF150644 að nafnvirði 800 milljónir króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,19% Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,47% og 4,49% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 28.ágúst 2008. Nánari upplýsingar veita Ívar Ragnarsson og Herdís Einarsdóttir (símar 569 6990, 569 6993).