Stjórn Eglu hf. samþykkti í dag árshlutareikning félagsins fyrir síðastliðið rekstrartímabil. Árshlutareikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa könnunaráritun endurskoðanda félagsins. Í árshlutareikningi félagsins kemur meðal annars fram eftirfarandi: 15.031 milljóna króna tap á rekstrartímabilinu • Tap tímabilsins var 15.031 milljónir króna en fyrir sama tímabil í fyrra var hagnaður félagsins 23.076 milljónir króna. • Gangisvirðisbreyting hlutabréfa var neikvæð um 6.890 milljónir króna í samanburði við jákvæða breytingu um 23.639 milljónir króna frá fyrra ári. • Reiknaður tekjuskattur tímabilsins var 836 milljónir króna. Efnahagur í lok tímabils Eignir félagsins lækkuðu um 33.587 milljónir króna frá byrjun árs til loka tímabilsins. Heildarskuldir Eglu hf. lækkuðu um 18.555 miljónir króna frá upphafi árs til loka tímabilsins og eru 37.198 milljónir króna. Eigið fé lækkaði um 15.031 millljónir króna. Breytingin skýrist af afkomu tímabilsins. Rekstrarhorfur á yfirstandandi ári Á yfirstandandi reikningstímabili hefur ástand á alþjóðlegum fjármálamörkuðum einkennst af mikilli lausafjárkreppu með þeim afleiðingum að hlutabréf skráðra félaga á Íslandi hafa lækkað mikið auk þess sem lán félagsins hafa hækkað með veikingu krónunnar. Í þeim tilgangi að verjast gengisáhættu hefur móðurfélag félagsins, Kjalar hf. gert gjaldmiðlasamninga á heildarlánasafni samstæðunnar.Eiginfjárstaða Eglu hf. er sterk og er félagið vel í stakk búið til að takast á við fjármálaumhverfið á yfirstandandi ári. Atburðir sem áttu sér stað að loknu rekstrartímabili Markaðsverð skráðra félaga í eignasafni Eglu hf. hefur lækkað það sem af er seinni helmings 2008. Eignarhlutur félagsins í Kaupþingi hf. hefur lækkað um 5,2% og í Alfesca um tæp 12,9% á tímabilinu. Á sama tímabili hefur gengi íslensku krónunnar veikst um 16,83%. Þrátt fyrir þessar breytingar er eiginfjárstaða félagsins sterk á áritunardegi árshlutareikningssins.
- 6 mánaða uppgjör 2008
| Source: Egla hf.