- Frestun innlausnar


Vinsamlega athugið að neðangreind tilkynning gildir,  þar til annað verður
tilkynnt. 

Enn er í gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 06.10.2008 um tímabundna
stöðvun viðskipta með alla fjármálagerninga sem útgefnir eru af Glitni banka
hf., Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Exista hf., Straumi
fjárfestingarbanka hf. og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf.   Ákvörðunin
var tekin þar sem það er mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði
ekki tryggt með öðrum hætti. 

Af því leiðir að Glitnir Sjóðir hf. kemst ekki hjá því að fresta innlausnum í
eftirfarandi sjóðum: 

Sjóður 1 - skuldabréf 
Sjóður 10 - úrval innl. hlbr. 
Sjóður 11 - fyrirtækjabréf 
Sjóður 6 - aðallistinn 
Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf 
Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar
fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með
fjármálagerninga félaganna. 

Frestun innlausnar ofangreindra sjóða er gerð á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og
2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.