Standard & Poor's lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt í 'BBB-' - horfur neikvæðar


Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag, 24. nóvember 2008, að
það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í
erlendri mynt í 'BBB-' úr 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. 

Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum var staðfest
'BBB'.  Horfur eru neikvæðar. Þá voru einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í
íslenskum krónum og erlendri mynt staðfestar, 'A-3'. 

Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á
lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. 

Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.

Attachments

2008_11_24 sp ratingsdirect.pdf