Aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf


Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum OMX Nordic Exchange á Íslandi að
gerast aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með
íbúðabréf. 
 
Aðilar að OMX Nordic Exchange á Íslandi sem tilbúnir eru að takast á herðar þær
kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa
þurfa að undirrita samning í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði milli
kl. 16:00 og 17:00, þriðjudaginn 9. desember 2008 í Íbúðalánasjóði. 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi í tengslum við viðskiptavakt á
eftirmarkaði.

Attachments

adalmidlarasamningur 8 12 2008-2009.pdf