Þann 31. júlí 2008 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaðar áætlanir varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2008. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 14-16 milljarða á fjórða ársfjórðungi ársins. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í útboð íbúðabréfa á fjórða ársfjórðungi. Nýjar áætlanir sjóðsins fyrir árið 2009 voru birtar þann 19. desember s.l.