- Hf. Eimskipafélag Íslands sendir frá sér afkomuviðvörun - Eigið fé félagsins verður neikvætt vegna aukinna afskrifta


Í desember sl. sendi Eimskip frá sér afkomuviðvörun vegna fyrirséðrar
gjaldfærslu á 4. ársfjórðungi. Þar kom m.a. fram að endurskoðun á
virðisrýrnunarprófum félagsins væri ekki lokið og því óljóst hver
heildargjaldfærsla vegna virðisrýrnunar myndi verða á 4. ársfjórðungi. 

Nú þegar vinna við endurskoðun er lengra komin er ljóst að þörf er á frekari
niðurfærslu eigna þ.m.t. hluta af viðskiptavild. Aðrar eignir félagsins hafa
auk þess verið endurmetnar og verðmæti þeirra fært niður í bókum félagsins. 

Viðskiptavild félagsins hefur vaxið mjög á síðustu árum í kjölfar mikilla
fjárfestinga í fyrirtækjum. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hafa
verið framkvæmd virðisrýrnarpróf m.a. á viðskiptavild félagsins. Í ljósi
aðstæðna á mörkuðum og  vegna varfærnissjónarmiða þá þarf að færa niður
viðskiptavild félagsins. Ofangreint leiðir til þess að eigið fé félagsins mun
verða neikvætt í árslok 2008 um allt að 150 milljónir evra. 

Fjárhagsleg endurskipulagning
Félagið hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu með
innlendum og erlendum ráðgjöfum. Eimskip hefur þegar náð samkomulagi við mikinn
meirihluta skuldabréfaeigenda um frestun vaxtagreiðslna og afborgana.  Félagið
hefur einnig náð undirrituðu samkomulagi við hluta af öðrum innlendum og
erlendum lánveitendum um frestum vaxtagreiðslna og afborgana. Félagið er
jafnframt í viðræðum við aðra lánveitendur og hafa viðbrögð lánveitenda almennt
verið jákvæð. 

Gert er ráð fyrir að sölu eigna í Norður-Ameríku ljúki í febrúar 2009 og mun
salan létta verulega á skuldsetningu félagsins. Ekki er ljóst hvert
söluverðmætið verður og því er enn óljóst hver áhrifin á sölunni verða
endanlega. 

Eftir söluna á eignum félagsins í Norður-Ameríku verður farið í frekari
viðræður við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu. Félagið
hefur nú þegar hafið undirbúning að viðræðum við lánveitendur sem snúa að því
að styrkja eiginfjárstöðu félagsins og tryggja framtíðarrekstur þess sem
skipafélags. 


Grunnrekstur Eimskips góður
Þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og óhagstæð skilyrði á fjármálamarkaði
gengur grunnrekstur félagsins vel. Vel hefur gengið að aðlaga rekstur félagsins
að þeim samdrætti sem hefur verið í flutningum til Íslands. 

Lausafjárstaða félagsins er tryggð og stöðug. Grunnrekstur félagsins,
flutningastarfsemin, gengur vel. Félagið mun sem fyrr veita viðskiptavinum
félagsins trausta og góða þjónustu. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand á Íslandi
og á helstu mörkuðum félagsins hefur félaginu tekist að tryggja lausafjárstöðu
og daglegan rekstur. 


Frekari upplýsingar veitir: Gylfi Sigfússon, forstjóri Hf. Eimskipafélags
Íslands.