- Kynning á afkomu annars ársfjórðungs


Alfesca mun birta rekstrarniðurstöður fyrir annars ársfjórðungs rekstrarársins
2008-2009 (okt - des) þriðjudaginn 10. feb. nk. eftir lokun markaða. 

Opinn kynningarfundur fyrir fjárfesta, greiningaraðila og fjölmiðla verður
haldinn að morgni næsta dags og þar mun Xavier Govare, forstjóri félagsins fara
yfir uppgjörið. 

Dags: miðvikudaginn 11. febrúar 2009
Staður: Hilton Reykjavik Nordica
Tími: kl. 08:30

Vefvarp frá fundinum má nálgast á vefsíðu Alfesca, www.alfesca.com, við upphaf
fundarins. Afrit af kynningum má nálgast á vefsíðu félagsins að fundi loknum. 

Um Alfesca
Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem
fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur
lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar
skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins
eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia,
Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra
einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 647 milljónir Evra
og starfsmenn eru um 3,600. 


Alfesca er skráð á NASDAQ OMX á Íslandi (OMXI: A). 

Nánari upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com 

Nánari upplýsingar veita:
Antony Hovanessian   framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar  í síma 477 7000
Hrefna Ingólfsdóttir     forstöðumaður samskiptasviðs í síma 477 7007