- SPM fær framlengda greiðslustöðvun


Eins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland
þann 27. apríl síðastliðinn fékk SPM greiðslustöðvun í þrjár vikur. Í dag var
greiðslustöðvunin framlengd til 30. Júní. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er
undirbúa nauðasamninga við lánadrottna á grundvelli samkomulags við helstu
lánadrotta sjóðsins. Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds
hæstarréttarlögmaður. 

Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef
nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf.