Þann 20. apríl 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á öðrum ársfjórðungi ársins, en samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 6,95 milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á öðrum ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á öðrum ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í lok 29. viku ársins 2009.