Hagnaður að fjárhæð 11,5 milljónir evra varð af rekstri Eyris Invest á fyrri hluta ársins 2009. Eigið fé nemur 195 milljónum evra í lok tímabilsins. Eyrir lauk í ágúst endurfjármögnun á skuldabréfum félagsins og er nýr lokagjalddagi þeirra nú í apríl 2011. Áður hafði Eyrir framlengt lokagjalddaga allra bankalána félagsins, fram til 2011 eða síðar. • Félagið birtir nú kannað árshlutauppgjör, fyrir tímabilið janúar-júní 2009. Starfrækslumynt félagins er evra, frá og með 1. janúar 2009. • Eigið fé er 195 milljónir evra og eiginfjárhlutfall er 44% • Laust fé og aðrar bankainnstæður nema 29 milljónum evra • Meðallíftími skulda félagsins er yfir 3 ár • Kjölfestueignirnar Marel, Össur og Stork skila öll sterku sjóðsstreymi á fyrstu 6 mánuðum ársins og horfur í rekstri félaganna eru góðar Meginhluti eigna Eyris Invest eru eignarhlutir í þremur leiðandi iðnfyrirtækjum: Marel, Össuri og Stork. Að auki fjárfestir Eyrir Invest í ýmsum sprotafyrirtækjum og styður þau til vaxtar. Stærsta fjárfesting félagsins í sprotafyrirtæki er leiðandi hlutur í Calidris sem þróar og markaðssetur hugbúnað til tekjustýringar hjá flugfélögum víða um heim. Eyrir Invest hefur skref fyrir skref, frá miðju ári 2006, farið út úr almennum fjárfestingum á verðbréfamarkaði og hefur engar almennar fjárfestingar í veltubók í dag. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri: „Við erum sátt við að skila hagnaði nú. Afkoma okkar endurspeglar fyrst og fremst afkomu félaga okkar að frádregnum fjármagnskostnaði. Marel, Össur og Stork hafa sýnt mikinn styrk í krefjandi efnahagsumhverfi, með auknu kostnaðaraðhaldi hefur þeim tekist að skila hagnaði og viðhalda sterku sjóðsstreymi . Við erum þakklát því trausti sem lánveitendur hafa sýnt okkur. Í rekstri Eyris, sem og í aðkomu okkar að rekstri lykileigna, höfum við ávallt lagt ríka áherslu á skýra stefnu, gegnsæjan rekstur og ábyrga fjármögnun. Marel, Össur og Stork eru öll vel fjármögnuð til lengri tíma, með firnasterka samkeppnisstöðu og eru nú í lykilstöðu til að skapa hluthafaverðmæti“ Eyrir Invest er langtímafjárfestir sem styður iðnfyriræki og sprota til vaxtar Lykileignir Eyris eru 38% eignarhlutur í Marel Food Systems hf., 20% eignarhlutur í Össuri hf. og um 17% hlutur í hollensku iðnaðarsamteypunni Stork. Eyrir hefur verið hluthafi í Marel og Össuri frá 2004 og í Stork frá árinu 2006. Kjölfestueignir Eyris hafa á undangengnum árum skapað sér stöðu sem markaðsleiðtogar hver á sínu sviði. Að baki er tímabil uppbyggingar og framundan er tímabil uppskeru. Lengri tíma fjármögnun hefur verið tryggð hjá öllum kjölfestueignum Eyris. Össur og Marel eru ekki skuldbundin til að greiða afborganir af rekstrarlánum sínum fyrr en í lok ársins 2011 og Stork er lengri tíma fjármagnað. Á næstu árum mun sterk staða félaganna á vaxandi mörkuðum gera þeim kleift að skila sterku sjóðsstreymi. SJÁ TÖFLU Marel og Össur stærstu félögin á Nasdaq OMX á Íslandi Marel og Össur eru í dag stærstu félögin sem skráð eru á Nasdaq OMX á Íslandi, og eru ennfremur á meðal stærstu útflutningsfyrirtækja á Íslandi. Væri stuðst við síðasta skráða gengi hlutabréfa félaganna myndi eiginfjárhlutfall Eyris reiknast liðlega 28% nú til samanburðar við rúmlega 25% í 6 mánaða uppgjöri félagsins. Tímabundinn markaðsbrestur er á íslenskum gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði frá hruni bankanna . Það er mat forsvarsmanna Eyris að tvíhliða skráning hlutabréfa á erlenda hlutabréfamarkaði til viðbótar við íslensku kauphöllina muni þegar fram líða stundir endurspegla betur raunvirði Marels og Össurar. Hlutabréf Marels hafa verið skráð í íslensku kauphöllinni frá árinu 1992, og Össurar frá árinu 1999. Á þeim árum hafa umsvif félaganna margfaldast og starfa nú um 3.600 starfsmenn hjá Marel og yfir 1.600 hjá Össuri út um allan heim. Össur hefur þegar sótt um tvíhliða skráningu hlutabréfa sinna í Danmörku auk núverandi skráningar á Nasdaq OMX á Íslandi. Horfur Efnahagsniðursveiflan um heim allan reyndist sneggri og dýpri en almennt var búist við. Marel, Össur og Stork sýndu mikinn styrk á liðnum vetri og hefur þeim öllum tekist að viðhalda sterku sjóðsstreymi. Horft fram á veginn er búist við góðum vexti í þeim atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris Invest tilheyra; matvælaiðnaði, heilbrigðisiðnaði, orku- og flugiðnaði. Frekari upplýsingar veitir: Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest Sími: 525-0200