Á kröfuhafafundi Milestone ehf. sem fram fór í dag voru greidd atkvæði um nauðasamningsfrumvarp félagsins. Atkvæði féllu þannig að 84,1% kröfuhafa greiddu atkvæði með frumvarpinu miðað við fjárhæð krafna og 79,6% miðað við höfðatölu. 8,17% greiddu atkvæði á móti miðað við fjárhæð og 11,1% miðað við höfðatölu. Nokkrir atkvæðismenn gáfu ekki uppi afstöðu eða mættu ekki til fundar. Nauðasamningsfrumvarpinu var hafnað þar sem tilskilinn atkvæðafjöldi (94%) náðist ekki fyrir frumvarpinu. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone: 414 1800
Milestone nauðasamningsfrumvarp
| Source: Milestone ehf.