Þann 17. júlí 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 7-9 milljarða á þriðja ársfjórðungi ársins. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í nein útboð íbúðabréfa á þriðja ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á þriðja ársfjórðungi en gert var ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í 41. viku ársins 2009.