Þann 7. október 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun um útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að fjárhæð 6-8 milljarðar á fjórða ársfjórðungi, en samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 3,68 milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á fjórða ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á fjórða ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Áætlanir sjóðsins um útlán, greiðslur og útgáfu íbúðabréfa á árinu 2010 verða birtar þann 21. desember 2009.