Leiðrétting: Fréttatilkynningu bætt við. Endurskoðaður ársreikningur Reykjanesbæjar var lagður fram í bæjarstjórn í gær. Samkvæmt ársreikningnum skilaði bæjarsjóður Reykjanesbæjar 7,7 milljarða kr. hagnaði árið 2009. Eignir bæjarsjóðs um áramót voru 24,2 milljarðar kr. Skuldir og skuldbindingar voru 14,1 milljarður kr. Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs var 41,8%, Rekstrargjöld bæjarsjóðs voru 186 milljónum kr. undir áætlun, 8,1 milljarður kr. Þrátt fyrir þetta hefur aukinn kostnaður í efnahagshruninu vegna niðurgreiðslu og félagslegrar aðstoðar aukist um 450 milljónir kr. s.l. 2 ár. Rekstrartekjur fyrir fjármagnstekjur voru tæplega 7 milljarðar kr. og voru 138 milljónum kr. undir áætlun. Rekstrarhagnaður samstæðu nam 6,3 milljörðum kr. Eignir samstæðu námu rúmlega 40 milljörðum kr. Skuldir og skuldbindingar voru 29,2 milljarðar kr. Eiginfjárhlutfall samstæðu var 27% Niðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði var tæplega 385 milljónum kr. hagstæðari en áætlað var. Reykjanesbær hefur ákveðið að greiða upp annað tveggja erlendra lána að upphæð kr. 254 milljónir kr. Varfærnissjónarmiða er gætt í eignfærslu eins og fram kemur í skýringum með ársreikningi. Þrátt fyrir mjög jákvæðar vísbendingar í ársreikningi er vandi bæjarins enn lágar tekjur af útsvari og hefðbundnar rekstrartekjur því undir rekstrarútgjöldum. Veltufjárhlutfall var 0,7 sem sýnir hæfi sveitarfélagsins til að inna af hendi nauðsynlegar greiðslur næstu tólf mánuði, sem bendir til lántöku eða annarra ráðstafana. Sýnt hefur verið fram á í úttekt Ráðgjafarfyrirtækisins Capacent frá febrúar s.l. og í eigin mati bæjaryfirvalda að fyrirhugaðar atvinnuframkvæmdir á ýmsum sviðum, sem eru komnar til framkvæmda, munu skila rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði innan þriggja ára og því m.a. til styrkingar á veltufjárhlutfalli. Nánar: Eignir standa undir skuldbindingum Vegna nýlegrar umræðu um færslu skuldbindinga af leigðum eignum til næstu 30 ára, sem skulda, skal tekið fram að skuldbindingar Reykjanesbæjar vegna greiðslu fyrir húsnæðisafnot til eigin félags, EFF, eru 8,8 milljarðar kr. á næstu 30 árum, miðað við núverandi leigu en 12 milljarðar m.v. upphaflegan samning. Eignir á móti skuldbindingu, sem Reykjanesbær nýtir, eru hins vegar bókfærðar hjá EFF á tæplega 16 milljarða kr. en skuldir að baki þessum eignum hjá EFF nema um 13,4 milljörðum kr. Þetta kemur fram í skýringum ársreiknings. Verulega dregið úr mati á virði eigna vegna varfærnissjónarmiða. Þrátt fyrir góða eignastöðu í ársreikningi gæti hún verið mun sterkari ef tillit væri tekið til virðis ýmissa eigna sem enn eru ekki metnar eða lágt metnar í efnahagsreikningi. 1. Skuldabréf sem er eign Reykjanesbæjar vegna viðskipta með hluti í HS orku tekur að hluta til vexti eftir þróun álverðs, sem var mjög hagstætt á síðasta ári. Uppreiknað verðmæti skuldabréfsins um síðustu áramót var 7,2 milljarðar kr. Til að gæta varfærnissjónarmiða er núvirði skuldabréfsins reiknað og fært niður í kr. 5,7 milljarða kr. sem þannig er skráð í ársreikning. 2. Hið nýja athafnasvæði að Ásbrú, í Reykjanesbæ, með yfir 2000 íbúðum og hundruðum bygginga til atvinnusköpunar, hefur ekki verið fært til eigna í bókum bæjarins, þrátt fyrir gjaldfærðan kostnað við endurbætur svæðisins. Metið eignavirði gatnakerfis og lagna er 2,9 milljarðar kr. 3. Þá hafa eignir Fasteigna Reykjanesbæjar, s.s. félagslegt húsnæði, ekki verið færðar frá bókfærðu verði til fasteignamats eða markaðsvirðis, líkt og gert hefur verið í nokkrum öðrum sveitarfélögum. Væri fasteignamat notað myndi það þýða 1 milljarðs kr. skráða virðisaukningu í eignum. 4. Lóðir og hafnarmannvirki í Helguvík eru heldur ekki færð til fasteignavirðis eða markaðsvirðis hjá Reykjaneshöfn, heldur miðað við lágt bókfært virði. Óúthlutaðar, tilbúnar lóðir í Helguvík eru að verðmæti 4,0 milljarðar kr., sem nemur 80% af skuldum Reykjaneshafnar. Þá er ekki framreiknuð til tekna lóðarleiga, fasteignagjöld og tekjur af höfninni sjálfri vegna útflutnings og innflutnings frá álveri og annarri framtíðarstarfsemi. 5. Lönd og lóðir í eigu Reykjanesbæjar hafa ekki verið færðar til eignar í efnahagsreikningi. Staðan framundan styrkist Miðað við þau fjölmörgu vel launuðu atvinnuverkefni sem unnið hefur verið að í Reykjanesbæ og eru að fara af stað, bendir flest til að rekstrartekjur verði komnar vel yfir rekstrargjöld árinu 2011. Ráðgjafarfyrirtækið Capacent vann skýrslu í febrúar s.l sem gerir ráð fyrir 5 milljarða kr. tekjuaukningu á næstu 4 árum, sem þýðir verulegan hagnað af rekstri innan þriggja ára. Áætlanir Reykjanesbæjar gera ráð fyrir 1,5 milljarða kr. tekjuaukningu á sama tíma og að rekstrarhagnaður verði nokkur á þriðja ári. Samkvæmt niðurstöðu ársreiknings Reykjanesbæjar getur bærinn enn tekið á sig umtalsverð áföll, sem þó er afar ólíklegt að reyni á vegna þeirra tekna sem væntanlegar eru í bæjarsjóð á næstunni.