Fundurinn kaus eftirfarandi einstaklinga í stjórn félagsins til næsta aðalfundar; Hermann Már Þórisson, kt. 090872-5409, aðalmaður. Jón Helgi Guðmundsson, kt. 200547-3149, aðalmaður. Ólafur Guðmundsson, kt. 221069-3239, aðalmaður. Sigurjón Jónsson, kt. 271249-4629, aðalmaður. Þórður Magnússon, kt. 150549-4939, aðalmaður. Steinunn Jónsdóttir, kt. 270568-3439, varamaður. Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum og er Þórður Magnússon áfram stjórnarformaður félagsins. Fundurinn samþykkti breytingar á eftirfarandi greinum í samþykktum félagsin þar sem 3., 4. og 5. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins falla niður og í stað þeirra kemur ný málsgrein er verður 3. mgr. 5. gr. og hljóðar svo: Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé þess um allt að 201.536.244 hluti með útgáfu nýrra hluta. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða ráðstöfun áskriftarréttar að hinum nýju hlutum sem og að ákveða gengi og önnur áskriftarkjör. Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar að hinum nýju hlutum í samræmi við 24. gr. laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Stjórn félagsins getur heimilað einstökum hluthöfum í ákveðnum tilfellum að skrifa sig fyrir áskrift nýrra hluta, að hluta eða heild. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og bera sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Heimildin gildir í átján mánuði, að því leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það tímamark.