Standard & Poor's lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs - horfur neikvæðar.


Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því 14. júní 2010, að það hefði
lækkað lánshæfiseinkunnir Íbúðalánasjóðs vegna lækkandi eiginfjárstöðu.
Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum lækkar í 'BB+'
úr 'BBB'. 

Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt
lækkuð í 'BB+' úr 'BBB-'. Lánshæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í
íslenskum krónum og erlendum myntum var lækkuð í 'B' úr 'A-3'. Þá voru
lánshæfiseinkunnirnar teknar af athugunarlista með neikvæðum vísbendingum.
Horfur eru neikvæðar. 

Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.

Attachments

2010_06_14 sp rating.pdf