Jákvæð rekstrarafkoma Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram í bæjarstjórn Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 146,3 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf., Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 1.810,3 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 1.794,3 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 1.716,3 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 307,4 millj.kr. Afborgun langtímalána er áætlað að nemi 1.174,6 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 1.494 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað að nemi 1.656,5 millj.kr. Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 8.148.8 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 53,19%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 30,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins ásamt jöfnunarsjóði eru áætlaðar 399 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 855 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2010 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 407 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 861 þús.kr. Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12. 2011 verði bókfærðar á 36.360 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.209 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi samkvæmt efnahagsreikningi 22.623 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.460 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.024 þús. kr. og heildarskuldir 1.196 þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 0,93 í árslok, en er áætlað 0,87 í árlok 2010. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 13.737 millj.kr í árslok 2011. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 38%. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar í dag, 7. desember, og við síðari umræðu þann 21. desember nk. Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011, samstæðan ásamt öllum fyrirtækjum bæjarins sem undir áætlunina falla. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2011 er birt í frumvarpinu áætluð útkomuspá fyrir árið 2010. Akureyri, 7. desember 2010 Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.