Reykjanesbær - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 var samþykkt í bæjarstjórn 4. janúar 2011 með 7 atkvæðum og 4 sátu hjá


Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur bæjarsjóðs nemi um 121,4 m.kr. og afgangur samstæðu verði um 396,4 m.kr. Rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði, að teknu tilliti til reiknaðra liða nemur um 201,4 m.kr. Eignir pr. íbúa eru áætlaðar 2.494 þús.kr. og skuldir pr. íbúa 2.034 þús.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað um 881,3 m.kr. fyrir bæjarsjóð og um 2.401,2 m.kr. fyrir samstæðu.