Íbúðalánasjóður - Niðurstaða útboðs íbúðabréfa

Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 10. mars 2011. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 7,396 miljarðar króna.


Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150434 að nafnvirði 2,707 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,16%

HFF150644 að nafnvirði 2,776 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,24%

 

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 3,20% og 3,22% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 17. mars 2011.

Nánari upplýsingar veita Sigurður Jón Björnsson sími 569 6990, Herdís Einarsdóttir sími 569 6993 og Ingi Kristinn Pálsson 569 6995.