Tillaga stjórnar um arðagreiðslu á aðalfundi 29. apríl nk.


Tillaga stjórnar HB Granda hf. fyrir aðalfund haldinn 29. apríl 2011 er að greiddur verði 20% arður (0,20 kr á hlut) vegna ársins 2010, alls að fjárhæð 339.606.745 kr. Arðurinn verði greiddur 13. maí 2011. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 29. apríl 2011 og arðleysisdagur því 2. maí 2011.

Arðsréttindadagur er 4. maí 2011. (Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 9:00 þann 4. maí 2011)”