Ársreikningur Grindavíkurbæjar 2010 var tekinn til fyrri umræðu 13. apríl 2010


   Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2010 var lagður fram til
fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 13. apríl 2011. 
Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum og verður
seinni  umræða þann 11. maí 2011 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á
ársreikningnum fyrirhuguð. 
   Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við
afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar
viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða
niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri
áritun.

 


Attachments

Grindavikurbr arsreikningur 2010.pdf Frettatilkynning til kauphallar vegna 2010.pdf