Tilkynning vegna tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga frá 8. apríl


Þann 8. apríl sl. setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem gefnir eru út af Reykjaneshöfn um endurfjármögnun hafnarinnar. Kröfuhafar hafa sett fram ákveðnar hugmyndir um breytingar á tillögunni sem Reykjaneshöfn vill taka til nánari skoðunar. Gert er ráð fyrir að setja fram uppfærða tillögu til kröfuhafa í næstu viku."