Ársreikningur Farice ehf 2010, helstu niðurstöður.
(Fjárhæðir eru í evrum)
-
Rekstrartekjur voru 6,7 milljónir (2009: 5,8 milljónir)
-
Rekstrar- og stjórnunarkostnaður nam 5,8 milljónum (2009: 4,5 milljónir)
- Tap ársins nam 17 milljónum ( 2009: 14,6 milljónir)
Helstu atriði
Á árinu 2010 stóð yfir fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf og dótturfélagsins Farice hf, í samvinnu við lánardrottna og hluthafa félaganna. Á hluthafafundum sem haldnir voru í félögunum í desember 2010 var samruni félaganna samþykktur. Ennfremur var samþykkt veruleg aukning hlutafjár í hinu sameinaða félagi, eftir að hlutafé hafði verið lækkað til að mæta uppsöfnuðu tapi. Þá var nafni sameinaða félagsins breytt í Farice ehf.
Rekstrarumhverfi og fjárhagur
Endurskipulagður fjárhagur Farice ehf á að tryggja að félagið geti staðið undir heilbrigðum rekstri og mætt þeim rekstri sem áætlaður er að verði á næstu árum. Tekjur félagsins eru annars vegar af viðskiptasamningum við almenn fjarskiptafélög og hins vegar af samningum við gagnaveraiðnaðinn. Árleg aukning fjarskiptaumferðar almennra fjarskiptafélaga er veruleg, en í áætlunum félagsins er þó gert ráð fyrir að meginvöxturinn verði á sviði þjónustu við gagnaver og skyldan iðnað. Þá skipta nýir samningar við lánardrottna um endurgreiðslur langtímalána afar miklu máli hvað varðar framtíð Farice ehf.
Frekari upplýsingar veitir:
Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sími: 893 4840
Netfang: gg@farice.is