Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2010


Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2010 verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 4. maí 2011. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður seinni umræðan í bæjarstjórn miðvikudaginn 18. maí næstkomandi.

 

Rekstarafgangur 11,7 millj. kr. á árinu 2010.

Samstæða A og B hluta:


Rekstarafgangur í samstæðureikningi Fljótsdalshéraðs fyrir A og B hluta á árinu 2010 nam tæpum 12 millj. kr. sem er um 56 millj. kr. lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir í samþykktri áætlun fyrir árið 2010.  Framlegð (EBITDA) úr rekstrinum skilaði 469 millj. kr. eða 19,42% framlegðarhlutfalli. Til samanburðar nam framlegð um 245 millj. kr. á árinu 2009 eða 10% framlegðarhlutfall.

Samkvæmt rekstarreikningi ársins 2010 námu rekstartekjur A og B hluta 2.416 millj. kr. samanborið við 2.436 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá fyrra ári nemur 0,8%.

Rekstargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstarkostnaður, afskriftir og tekjuskattur námu á árinu 2.177 millj. kr. en voru 2.360 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá fyrra ári nemur 7,8%.

Veruleg breyting er á fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum milli ára. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2010 námu 228 millj. kr. samanborið við 483 millj. kr. árið 2009.

Afkoma sveitarfélagsins batnar því um 420 millj. kr. á milli ára.

Við samanburð á rekstri á milli áranna 2009 og 2010 þarf að hafa í huga að hluti breytinga skýrist af breytingum á reikningsskilaaðferðum sem gerðar voru í árslok 2009 varðandi meðferð leigusamninga af fasteignum og mannvirkjum. Þessar breytingar tóku gildi í árslok 2009 og því eru leigugreiðslur vegna leigusamninga um fasteignir á mannvirki færð sem rekstargjöld í rekstarreikning á árinu 2009 en þessi kostnaður er færður í rekstarreikning sem afskriftir leigueigna og vaxtagjöld á árinu 2010.

A hluti:

Rekstartekjur A hluta námu 2.109 millj. kr. samanborið við 2.134 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun milli ára nemur alls 1,2%.

Rekstargjöld A hluta námu alls 1.966 millj. kr. á árinu 2010 en voru 2.151 millj. kr. á árinu 2009.

Lækkun frá fyrra ári nemur 8,6%.

 

 

Sjá lykiltölur í meðfylgjandi viðhengi. 

         Nánari upplýsingar veitir: Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs


Attachments

Arsreikningur Fljotsdalsheras 2010.pdf Frettatilkynning .pdf