Aðalfundur Farice ehf var haldinn þann 27. maí 2011 á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, Kópavogi.
Helstu niðurstöður aðalfundarins voru þessar:
1. Kynnt var skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra.
2. Ársreikningur fyrir árið 2010 var samþykktur.
3. Samþykkt var að tap félagsins yrði ráðstafað til lækkunar á eigin fé félagsins.
4. Samþykkt var tillaga um að þóknun fyrir stjórnarstörf yrði óbreytt, þ.e. kr. 75 þús. á mánuði
fyrir stjórnarmenn og kr.150 þús. á mánuði fyrir stjórnarformann.
5. Í stjórn félagsins voru kjörnir:
Aðalmenn:
Egill Tryggvason, Karl Alvarsson, Kristján Gunnarsson, Magnús Bjarnason og Pétur Richter.
Varamenn:
Hafsteinn S. Hafsteinsson, Kristín S. Konráðsdóttir, Þorgerður Marinósdóttir, Þórður Ólafur
Þórðarson og Þórhallur Arason.
6. Samþykkt var tillaga um að endurskoðunarfélag félagsins yrði KPMG ehf.
7. Samþykkt var tillaga um að hækka gildandi heimild stjórnar til að auka hlutafé í A-flokki úr
EUR 3 milljónum í EUR 8 milljónir.
Stjórn félagsins kom saman þennan sama dag og skipti með sér verkum þannig:
Formaður stjórnar: Karl Alvarsson
Varaformaður: Kristján Gunnarsson