Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn


Þann 31. maí 2011 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar“) um endurfjármögnun stofnunarinnar.

Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt tillöguna. Telst því tillagan samþykkt.

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.