Íbúðalánasjóður - Niðurstaða útboðs íbúðabréfa

Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 29. júlí 2011. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 8,180 miljarðar króna.


Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150434 að nafnvirði 2,010 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,24%

HFF150644 að nafnvirði 2,550 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 3,32%

 

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 3,28% og 3,30% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 5. ágúst 2011.

Nánari upplýsingar veita Sigurður Jón Björnsson í síma 569 6990 og Ingi Kristinn Pálsson í síma 569 6995.