Standard & Poor's breytir horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum.

Standard & Poor's breytir horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs.


Matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í gær, 24. nóvember 2011, að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum.

Jafnframt voru staðfestar einkunnirnar BB/B fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og BBB-/A-3 fyrir skuldbindingar í innlendri mynt.

Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í stöðugar úr neikvæðum.

Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.