Tilkynning um afskráningu skuldabréfaflokka Reykjaneshafnar í Kauphöll


Reykjaneshöfn hefur keypt og fengið afhent öll skuldabréf í flokkunum RNH 04 1, RNH 05 1 og RNH 08 1. Uppkaupin voru í samræmi við tillögu til lánadrottna og eigenda skuldabréfa sem tilkynnt var í Kauphöllinni þann 31. maí 2011. Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. var umsjónaraðili nýrrar útgáfu og uppkaupa ofangreindra skuldabréfa.

Reykjaneshöfn er nú orðin eigandi allra bréfanna og hefur óskað eftir því að þau verði afskráð í Kauphöllinni.

Jafnframt hafa ný skuldabréf í flokkunum RNH 27 0415 og RNH 16 1015 verið skráð í Kauphöllinni.