Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2012


Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2012 er í seinni umræðu í bæjarstjórn þriðjudaginn 3. janúar 2012. Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur fyrir afskriftir og fjármagnsliði verði um 525,1 m.kr fyrir bæjarsjóð og 2.499,5 m.kr fyrir samstæðu. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs, að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, verður um 230,1  m.kr. og halli samstæðu verður um 452,2 m.kr. Eignir pr. íbúa eru áætlaðar 2.122 þús.kr. fyrir bæjarsjóð og 3.374 þús.kr fyrir samstæðu. Skuldir pr. íbúa eru áætlaðar 1.587 þús.kr fyrir bæjarsjóð og 2.680 þús.kr. fyrir samstæðu. Veltufjárhlutfall hækkar í 1,39 fyrir bæjarsjóð og í 1,62 fyrir samstæðu. Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar og verður 25,21% og fyrir samstæðu 20,55%. Veltufé frá rekstri er áætlað um 371,7 m.kr. fyrir bæjarsjóð og um 1.719,6 m.kr. fyrir samstæðu. Handbært fré frá rekstri fyrir bæjarsjóð er áætlað 110,6 m.kr og fyrir samstæðu 1.654,2 m.kr Handbært fé bæjarsjóðs í árslok er áætlað 1.250,3 m.kr og fyrir samstæðu 1.660,3 m.kr.