Eftirtaldir sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður miðvikudaginn 29. febrúar næstkomandi kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ:
Arnar Þór Másson, Reykjavík
Árni Oddur Þórðarson, Reykjavík
Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík
Friðrik Jóhannsson, Reykjavík
Helgi Magnússon, Seltjarnarnes
Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnes
Theo Bruinsma, Oss, Hollandi
Frekari upplýsingar um framangreinda aðila eru nú aðgengilegar á upplýsingasíðu aðalfundar 2012 á heimasíðu félagsins: http://www.marel.com/agm.
Framboðsfrestur er nú runninn út. Samþykktir félagsins kveða á um að fjöldi stjórnarmanna skuli vera 7-9 og verða framangreindir sjö aðilar þ.a.l. sjálfkjörnir í stjórn félagsins á komandi aðalfundi án sérstakrar atkvæðagreiðslu.