Afkoma HB Granda árið 2011


  • Rekstrartekjur samstæðunnar árið 2011 voru 183,7 m€, en voru 144,8 m€ árið áður
     
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – EBITDA - var 56,2 m€ (30,6%), en var 41,2 m€ (28,5%) árið áður
     
  • Hagnaður ársins var 37,3 m€, en var 7,8 m€ árið áður

 

Sjá lykiltölur í viðhengi
 

Rekstur ársins 2011

Rekstrartekjur HB Granda hf. árið 2011 námu 183,7 m€, samanborið við 144,8 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 56,2 m€ eða 30,6% af rekstrartekjum, en var 41,2 m€ eða 28,5% árið áður.  Hærra EBITDA hlutfall skýrist m.a. af hækkun á afurðaverðum og auknum verðmætum vegna vinnslu á makríl til manneldis.  Olíuverð hækkaði hins vegar verulega á milli ára.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 4,7 m€, en voru neikvæð um 13,6 m€ á sama tíma árið áður.  Lægri fjármagnskostnaður skýrist meðal annars af jákvæðum gengismun að fjárhæð 1,0 m€ en árið áður nam gengistap 8,2 m€.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 2,4 m€, en voru 2,5 m€ árið áður.  Þessi áhrif má að meginhluta rekja til fiskeldis innan síleska fyrirtækisins Deris.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 43,2 m€.  Tekjuskattur að fjárhæð 5,9 m€ er reiknaður samkvæmt framtali í íslenskum krónum.  Þar af nemur tekjuskattur til greiðslu 4,4 m€.  Hagnaður ársins varð því 37,3 m€.

Meðalfjöldi ársverka árið 2011 var 825 en var 757 árið 2010.  Ársverkum fjölgaði því um 68 á árinu, mest vegna umfangsmeiri vinnslu í uppsjávarfrystingu.  Laun og launatengd gjöld námu samtals 57,7 m€ (9,3 milljarðar króna samanborið við 7,8 milljarða árið 2010).

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 322,9 m€ í árslok 2011. Þar af voru fastafjármunir 254,6 m€ og veltufjármunir 68,3 m€.  Eigið fé nam 175,5 m€ og var eiginfjárhlutfall 54,4%, en var 46,5% í lok árs 2010. Heildarskuldir félagsins voru í árslok 147,4 m€.

Sjóðsstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 44,3 m€ árið 2011, en 24,0 m€ á sama tíma fyrra árs.  Fjárfestingar námu 9,1 m€.  Fjármögnunarhreyfingar námu 25,1 m€ og voru nettó afborganir langtímalána þar af 23,1 m€.  Handbært fé hækkaði því um 10,1 m€ og var í lok árs 21,2 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2011 (1 evra = 160,9 kr) verða tekjur 29,6 milljarðar króna, EBITDA 9,1 milljarðar og hagnaður 6,0 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2011 (1 evra = 158,4 kr) verða eignir samtals 51,1 milljarðar króna, skuldir 23,3 milljarðar og eigið fé 27,8 milljarðar.

Skipastóll og afli

Skipastóll HB Granda hf. var óbreyttur.

Árið 2011 var afli skipa félagsins 55 þúsund tonn af botnfiski og 106 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Aðalfundur

Aðalfundur HB Granda verður haldinn föstudaginn 13. apríl 2012 í matsal félagsins við Norðurgarð í Reykjavík og hefst klukkan 17:00. 

Tillaga stjórnar á aðalfundi um arðgreiðslu

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 40% arður af nafnverði hlutafjár (0,40 kr. á hlut), þ.e. arðgreiðsla að fjárhæð 679 millj. kr. (um 4,3 millj. evra á lokagengi ársins 2011), sem samsvarar 11,3% af hagnaði ársins 2011 og 2,4% af eigin fé eða 3,2% af markaðsvirði hlutafjár í árslok 2011. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2012. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 13. apríl 2012 og arðleysisdagur því 16. apríl 2012.

Arðsréttindadagur er 18. apríl 2012 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri Verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 9:00 þann 18. apríl 2012)

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur                     13. apríl 2012

Birting ársskýrslu           13. apríl 2012

Arðgreiðsludagur            30. apríl 2012

Hálfsársuppgjör              27.-31. ágúst 2012

Ársuppgjör 2012             11.-15. mars 2013

 


Attachments