Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað Jóhann Ársælsson fyrrverandi alþingismann formann stjórnar Íbúðalánasjóðs í stað Katrínar Ólafsdóttur lektors sem óskað hefur lausnar vegna annarra starfa. Jafnframt hefur ráðherra skipað Henný Hinz, hagfræðing, sem aðalmann í stjórnina og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sérfræðing í innanríkisráðuneytinu, sem varamann hennar.
Stjórn Íbúðalánasjóðs er þar með skipuð eftirtöldum fulltrúum:
- Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismaður , formaður
- Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður
- Henný Hinz, hagfræðingur
- Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður
- Elín R. Líndal, framkvæmdastjóri
Til vara:
- Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi
- Steinar Harðarson, verkfræðingur
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu
- Sigríður Á. Andersen, héraðsdómslögmaður
- Hákon Hákonarson, vélvirki