Eyrir Invest hf. Niðurstöður hluthafafundar


Hluthafafundur Eyris Invest ehf. („félagið“), var haldinn í húsakynnum félagsins að Skólavörðustíg 13, Reykjavík, þriðjudaginn 5. júní 2012, kl. 12:00.

 

Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundinum: 

                                                                                                   

1. Breyting félagsins úr einkahlutafélagi í hlutafélag

Tillaga um að breyta félaginu úr einkahlutafélagi í hlutafélag í samræmi við ákvæði 107. gr. laga nr. 138/1994 um   einkahlutafélög var samþykkt.

2. Rafræn skráning hluta

Tillaga um að skrá hlutafé félagsins með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa var samþykkt.

3. Breyting samþykkta – meðferð hluta

Tillaga um að afnema allar hömlur á meðferð hluta í félaginu var samþykkt.

4. Önnur mál

Engin önnur mál voru rædd á fundinum.

 

Viðeigandi breytingar hafa verið gerðar á samþykktum félagsins.